Rúmlega 80 manns mættu á fyrsta geðfræðslukvöld Hugrúnar. Þar voru haldin erindi um streitu, geðrækt og einnig fengum við að heyra þrjár reynslusögur. Umræður sköpuðust oft í lok erinda og það er hægt að segja með vissu að vel tókst til á þessu fræðslukvöldi. Þrjú fræðslukvöld eru nú eftir og það næsta er á fimmtudaginn 21.september.