Geðfræðslukvöld Hugrúnar eru nú að fara af stað. Það fyrsta er þriðjudaginn 19. september, en þau fara öll fram í Hringsal Barnaspítala Hringsins. Dagskráin er mjög fjölbreytt og hefst alla daga kl. 16:30 með stuttri kynningu fundarstjóra. Nánari upplýsingar um dagskrá hvers kvölds má finna á meðfylgjandi myndum. Matarpása er svo alla daga frá 18:30-19:00 og verður boðið uppá veitingar á staðnum. Dagskráin er svo búin kl. 20:30 og er því nægur tími fyrir góðan nætursvefn áður en haldið er til skóla eða vinnu næsta dag.

Ef þú hyggst gerast fræðari hjá Hugrúnu þá þarftu að skrá þig, mæta á að minnsta kosti þrjú fræðslukvöld sem og í fræðsluferðina sem farin verður þann 30.september.