Hugrún geðfræðslufélag stendur fyrir geðveiku bingói sem fram fer í Stúdentakjallaranum þann 4.júlí. Bingóið hefst kl. 20 og það er enginn annar en Ólafur Ásgeirsson úr Improv Ísland.

Hugrún er algjörlega rekin á styrkjum og sjálfboðavinnu, og því er bingóið afar mikilvægt fyrir starfsemi félagsins. Eitt bingóspjald verður á 1000 kr og 3 spjöld á 2000 kr. Vinningarnir verða alls ekki af verri endanum en eftirfarandi fyrirtæki hafa gefið vinninga

24 Iceland
ZO-ON
SuitUp
Kayakferðir
Íslenska flatbakan
Tapas-barinn
Sæta svínið
Prentagram
Hertz
Eldhestar
Ölgerðin
Arion banki

Vinsamlegast athugið að það verður ekki posi á staðnum en við bendum á hraðbanka sem er staðsettur á 2.hæð Háskólatorgs. Einnig verða Hugrúnarbolir til sölu á staðnum.