Atla Sigþórsson þekkja flestir sem rapparann Kött Grá Pjé. Atli hefur frá unga aldri glímt við mikið myrkur, eins og hann orðar það, og á sína djöfla að draga. Hann sagði mér frá sinni glímu við þunglyndi og á hvernig stað hann er í dag. Atli nefnir að það hafi hjálpað honum mjög mikið með félagskvíðann að stíga á svið og syngja.

 

Myndband þetta er unnið af Þórhildi Erlu Pálsdóttur en þetta er hluti af lokaverkefni hennar til meistaragráðu í blaða- og fréttamennsku.